Góðar fréttir frá ÍE

Margir mjög jákvæðir hlutir hafa verið að koma fram hjá ÍE að undanförnu. Ánægjulegt að sjá að þeir eru að ná árangri víða. Vonandi kemst umræðna hér á landi einhverntíma út úr þeirri neikvæðni sem almennt hefur einkennt viðhorf fólks til ÍE. Fyrirtækið er eitt það framsæknasta sem starfandi er hér á landi, eina skráða íslenska fyrirtækið sem skráð er í kauphöll í BNA og líklega það íslenska fyrirtæki sem mest er verslað með af bréfum í.

mbl.is Erfðaþættir auka áhættu á hjartsláttaróreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Opinberaðir businessmenn"

Ég held að að það verði ekki góð þróun ef Hafnarfjörður og Reykjanesnær nýta forkaupsrétt sinn í HS. Það gæti verið HS hagkvæmt að fá inn aðila með aðra sýn og aðrar áherslur. Aðilar sem eru vanir að standa í samkeppni hugsa á annan hátt en "opinberir" businessmenn. Nýir aðilar geta eflaust lagað mikið til í rekstri sem hefur í of langan tíma þrifist í skjóli opinberrar verndar og er orðinn innanfeitur af verndinni.

Víða um heim er verið að einkavæða orkugeirann til að ná fram aukinni hagkvæmni.  Möguleikar HS til frekari vaxtar,  t.d. með því að hasla sér völl erlendis með sérþekkingu sinni á virkjun og dreifingu jarðvarma skerðast verulega, að mínu mati, með auknum kaupum Hafnarfjarðar og Reykjanesbæjar.  

Jafnframt má velta því fyrir sér hvort sveitarstjórnarmenn hafa heimildir til að ganga þvert á ákvarðanir ríkisvaldsins um einkavæðingu í orkugeiranum. Eigum við íbúarnir kannski ekki rétt á því að fá að kjósa um svona stórar ákvarðanir, líkt og gert var um stækkun álversins í Hafnarfirði?


mbl.is Segir útilokað að Hafnarfjörður geti eignast 60% í HS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óttalega vitlaust

Mér finnst þetta nú vera óttalega vitlaust og sóun á fé illra stæðra sveitarfélaga að senda sveitarstjórnarmenn í þessa för.  Nær að eyða smá tíma og skoða hvar olíuhreinsunarstöðvar eru staðsettar og afhverju þær eru staðsettar á þessum stöðum. Líka hægt að velta því fyrir sér afhverju ekki hefur verið byggð ný stöð í USA í mörg ár og af hverju ekki eru fyrirætlanir olíufyrirtækja um að byggja fleiri.  Örugglega hægt að fá miklar upplýsingar með litlum tilkostnaði til að átta sig á því hvort ástæða sé til að eyða meiru af fé skattborgaranna í frekari skoðun.

 


mbl.is Fulltrúar vestfirskra sveitarfélaga kynna sér olíuhreinsistöðvar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tímamóta ræða

Hátíðarræðan er gríðarlega góð hjá Sturlu og andinn í henni góður. Ekki oft sem maður sér (heyrir) stjórnmálamenn ganga svona hreint til verks. Formaðurnn hefði mátt hafa svipaðan anda í sinni ræðu.
mbl.is Sturla: Kvótakerfið hefur mistekist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seðlabankinn

Ég held að eitt að stærstu vandamálum peningamálastefnunar sé að trúverðugleiki bankans er ekki nægjanlegur. Í forsvari fyrir bankann eru pólitíkusar trekktir upp eða settar í þá nýjar Duracell rafhlöður og  síðan uppdubbaðir í einhverri menntaskólahagfræði.  Að lokum gerðir klárir til að upplýsa okkur hin um verðbólgumarkmið bankans og hvort breyta eigi vöxtum eða ekki til að unnt sé að lifa mannsæmandi á þessu skeri. Eftir leiðsögnina í fræðunum vilja þeir allir verða eins og Greenspan og helst að hafa það þannig að þegar þeir mæla að þá verði máttur orða þeirra slíkur að hlutabréfa- og/eða gengisvísitölur taka að dansa líkt og norðurljós um miðja vetrarnótt.

En þetta er ekki svona. Það er ekki hlaustað á þá, trúverðug- og myndugleikann vantar. Þeir eru ekki Greenspan, bara uppdubbaðir platseðlabankastjórar sem allir vita að hefðu orðið betri yfirflugstjórar á Boeing 757 ef ríkð væri enn með flugfélag. Hefði ég frekar kosið að þeir hefðu fengið þá vegtitla, þ.e. að verða flugstjórar hjá ríksflugfélaginu sáluga (blessuð sé minning þess) en setjast í stól seðlabankastjóra og hafa engan mátt eða kunna ekki að beita þeim stjórntækjum sem þeir hafa í höndunum. Aðgerðir Seðlabankans til að hafa áhrif, snúa ekki bara að vöxtum og bindiskyldu. Það felst líka í skoðunum, hugmyndum og að sannfæra aðra um ágæti hugmyndarinnar.  Bankinn hefur brugðist þessu hlutverki sínu og fyrir bragðið eru önnur tæki sem hann hefur vita bitlaus. Trúverðugleikinn hefur beðið hnekki.

Við erum nú stödd í kerfi þar sem er met viðskiptahalli, fara þarf til Brasilíu eða Zimbabwe til að finna jafn háa stýrivexti og styrkur krónunar þannig að engin innlend framleiðsla fær staðist slíkt til lengdar. Þá eru aðstæður þannig hér, að farið er að gera út af erlendum aðilum, á þá vexti sem hér eru. Gefin eru út hávaxta jöklabréf sem ellilífeyrisþegar í Þýskalandi kaupa. Og hvers skyldi svo á endanum greiða vextina? Við gerum það á endanum. Almenningur hér á landi greiðir fyrir vaxtamuninn sem er á erlendu myntinni og vöxtunum á krónunni. Þannig fer hluti af okkar afkomu í að fjármagna ævikvöld þýsks tannlæknis eða kennara á sólarströnd í Tyrklandi.

Seðlabankinn þarf að öðlast trúverðugleika. Slíkt held ég að ekki takist nema að við fáum í forsvari fyrir bankann mann/konu (já einn bankastjóri dugar eins og annarsstaðar) sem er trúverðug, hefur þekkingu á því sem bankinn er að fást við og er kominn það langt í fræðunum að hann þarf ekki að treysta á tossamiða í púltinu.


mbl.is Davíð segir gagnrýni SA ekki trúverðuga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann hlýtur að hafa verið að skemmta sér í gærkveldi

Þetta eru nú einhver furðulegasta tilvitnun sem ég hef lengi séð. Maður sem er í forsvari fyrir samtök sjómanna skuli nú fyrst vera að gera sér grein fyrir að eitthvað sé bogið við kerfi sem "rökfræðilega" getur ekki leitt af sér vernd. Hvað er maðurinn að hugsa? Hann hlýtur að hafa verið að skemmta sér í gærkveldi og er líklega illa fyrirkallaður í dag.

Um aðferðir Hafró við stofnmælingar má örugglega deila. Svipað og ætla að telja Indverja með því að fljúga yfir Indland.


mbl.is Eitthvað hlýtur að vera að fiskveiðistjórnuninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árangur heimsins besta "verndarkerfis"

"Verndarkerfi" sem gefur þessa niðurstöðu er skrýtið kerfi. Þegar árlegur jafnstöðuafli íslenskra útgerða fimmtíu áranna á undan kvótasetningunni var á bilinu 280 til 330 þús. tonn. og breskir togarar lágu að auki í smáfiski. Það er ekki hægt að nota hugtakið "kerfi" yfir þetta. Þetta er meira í líkingu við söguna um "Nýju fötin keisarans" eða söguna um Pótimín keisara. Hversu lengi á þessi blekking um vernd að vera við lýði? Kerfið er peningakerfi en ekki verndarkerfi.

Þetta er komið út yfir allt velsæmi. Stofnarnir verða ekki veiðanlegir með sama áframhaldi. Gengdarlaus rányrkja er stunduð á miðunum í kringum landið.  Með sama áframhaldi eiga lífskjör hér eftir að skerðast stórkostlega.


mbl.is Sjávarútvegsráðherra: Þurfum að ræða málin af yfirvegun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kerfið er vandamálið.

Þetta gengur líklegast yfir þegar búið er að klára það sem er bitastæðast og tekur að beygja sig eftir á Vestfjörðum og Í Vestmannaeyjum. Ég tel að þetta gerist t.t. hratt. Verði yfirstaðið innan fimm ára. Þegar búið verður að þjappa þessu saman held ég að ekki verði nema tvær, kannski þrjár alvöru útgerðir í landinu. Lítið eða ekkert gert út frá Vestfjörðum og lítið frá Vestmannaeyjum. Byggðirnar á Vestfjörðum horfnar og Vestfirðirnir orðnir stærsti þjóðgarður í Evrópu. Vestmannaeyjar byggðar 500 hræðum.

Þegar einingarnar stækka losa "frumkvöðlarnir" sig að einhverju leyti út úr eignarhaldinu og inn koma nýir aðilar. Ég spái því að á þeim tímapunkti verði búið að búa svo um hnútana á hinu háa Alþingi að fjárfesting í sjávarútvegi verði óháð þjóðerni. Gefur líka "lénsherrunum" meiri möguleika að fá hærra verð fyrir "afraksturinn" með því að opna fyrir fleiri kaupendur. Norðmenn og/eða ESB verði í framhaldinu hér meira ráðandi í veiðum og vinnslu.

Vandamálið er ekki Rifsbræður! Vandamálið felst í því kerfi sem við höfum innleitt. Kerfinu verður að breyta.


mbl.is "Þetta er bara græðgi, bara græðgi og ekkert annað"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru Vinstri-græn græn?

Mér finnst þetta vera gott framtak hjá VG að bregðast við á þennan hátt. Vona bara að hugur fylgi máli og þeir reyni að fylgja þessu eftir. En mér finnst stefna þeirra í fiskveiðistjórnunarmálum óskýr og ekki nægjnlega afgerandi. Hugmyndafræðingar þeirra hafa enn ekki áttað sig á því að fiskveiðistjórnunarkerfið er peningakerfi en ekki verndarkerfi. Umgengnin um auðlindina miðast við að hámarka afrakstur framleiðslutækjanna en ekki afkastagetu fiskistofnana. Úr auðlindinni er tekið það sem passar peningakerfinu. Hinu sem ekki passar er skilað dauðu í faðm hafsins.

Það er ekki nóg að vera græn um holt og móa og hafa skoðanir á því sem sést með berum augum. Á mestu auðlind okkar er stunduð skipulögð rányrkja og umgengnin um veiðisvæðin er þannig að þúsund ára gamlir kórallaskógar hafa verið flattir út með stöðugum skakstri botnvörpunnar. Eyðimerkur eru nú þar sem áður voru gjöful fiskimið. Líklega yrði uppi fótur og fit ef um Hallormstaðarskóg færu daglega 6 jarðýtur með slóðadragara. En áhrif botnvörpunnar eru ekki svo ósvipuð. 

Náttúruvernd VG þarf líka að taka til þessarar auðlindar, skilyrðanna í hafinu og ekki síður að allir hafi jafnan rétt á að nýta auðlindina.  Það væri trúverðug og alvöru náttúruvernd.


mbl.is Flateyringar eru skítugu börnin hennar Evu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tyrkjaránið?

Tilboð þeirra Rifsbræðra um kaup á hlutafé Vinnslustöðvarinnar er ekki rán. Ekki heldur Tyrkjarán. Það er í fullu samræmi við þær reglur og þau lög sem við höfum sjálf ákveðið að gildi um meðferð og framsal fiskveiðiheimilda. Leikreglurnar eru skýrar og á meðan þær eru óbreyttar færast heimildirnar þangað sem arðurinn verður mestur fyrir handhafa heimildanna.

Binni í Vinnslustöðinni útlistaði þetta sjálfur í grein fyrir stuttu þar sem hann fór mörgum orðum um að heimildir á margra höndum væri eins og fé án hirðis. Er hann þá ekki ánægður að heimildirnar skuli færast á enn færri hendur?  Það hlýtur að vera rökrétt. Sá sem getur borgað mest og safnað mestum heimildum hlýtur að vera sá sem getur gert mest úr heimildunum og kann þar af leiðandi best með þær að fara.

Fiskveiðistjórnunarkerfið er "hundalógíkakerfi" og varðhundar þessa kerfis, eins og Binni, hafa beitt hundalógík til að verja það. Nú er svo komið að fjöregg Vestmannaeyja (óveiddur fiskur), sem með kerfinu var fært nokkrum útvöldum,  gæti lent á Rifi og lénsherrann þar ákveðið hvar og hvernig aflinn yrði verkaður.  Það fellur jú ágætlega að hundalógíkinni. Fiskveiðisstjórnunarkerfið hefur ekki sgat sitt síðasta og á eftir að gera enn meiri usla á landsbyggðinni. Við eigum eftir að sjá gamalgróin byggðarlög með yfirburðaraðgengi að auðlindinni hverfa. Vestmannaeyjar sem er besta verstöð landsins, verður með sama áframhaldi 500 manna byggð. Lítið lén sem geldur lénsherranum sitt.  

Og af hverju ættum við ekki að vera ánægð með þessa "hagræðingu"? Meirihluti þjóðarinnar lýsti skoðun sinni í kjörklefunum fyrir ekki svo löngu síðan.


mbl.is „Græðgistilboð" í Vinnslustöðina veldur kvíða í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hagbarður

Höfundur

Hagbarður
Hagbarður

Óli Rúnar Ástþórsson

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband