10.12.2008 | 13:26
Mesta ógnunin
Lækkun á fiskverði erlendis, jafnvel hrun, er líklega mesta ógnunin sem við stöndum frammi fyrir um þessar mundir. Þetta getur orðið þungt högg og ekki gott að verða fyrir því í þeirri veiku stöðu sem við erum í. Það verður ekki auðvelt að hreinsa til í rústunum ef gjaldeyristekjurnar dragast verulega saman. Það verður jafnframt vonlaust að halda úti viðlíka opinberri þjónustu og gert hefur verið á undanförnum árum.
Það verða ekki bankar, opinber fyrirtæki, heildsölur, þjónustufyrirtæki, byggingarfyrirtæki eða sprotafyrirtæki sem draga okkur á endanum út úr kreppunni. Það verður fiskur, slor og ferðaþjónusta. "Gamla hagkerfið" og gömlu "lurkarnir" þar sem framleidd eru "raunveruleg" verðmæti munu verða "gufuvélin" sem dregur vagninn áfram. Því eru fréttir um lækkun fiskverðs og frekari dýpkun alheimskreppunnar ekki bara áhyggjuefni fyrir þessar greinar, heldur landsmenn alla.
Fréttaskýring: Hamfarir á hrávörumörkuðum hafa áhrif hér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Viðskipti og fjármál | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Hagbarður
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Rétt hjá þér Skordal. Takk fyrir innlitið.
Hagbarður, 13.12.2008 kl. 14:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.